|
Meeeww.. Sagði kisa... |
|
ÞokaÞoka er íslenskur fjárhundur og kemur frá Ingu Hildu Ólfjörð á Ólafsfirði.
Hún er fædd þann 17. apríl 2007 Þoka er ein af þremur tíkum úr sex hvolpa goti. Ég gerðist svo fræg að fara norður og skoða hvolpana þegar þeir voru enn hjá Pílu og að sjálfsögðu verð ég alveg veik þegar ég fæ að skoða hvolpa. Það var ekki á dagskrá hjá mér að fá mér annann hund strax þó að vissulega kom ekki annað til greina í framtíðinni. Tæpu ári seinna hefur Inga samband við mig með að hvolpurinn Bolla sem nú heiti Þoka þurfi nýtt heimili. Það tók mig sólahring að ákveða mig, ræða við bóndann og Skelli og fá svör frá hundapíunni minni a.k.a. mömmu hvort hún væri til í að passa fyrir mig tvo hunda ef ég eitthvað þyrfti að fara. Þoka kom svo í bæinn stuttu seinna. Hér er hún tæplega 11 mánaða og hvíti feldurinn ennþá hvítur semsagt fyrir smurstöðvarstörf. Þoka er rosalega þæginlegur hundur, róleg og góð og heyrist ekki í henni nema mikið sé í gangi. Henni finnst gott að sofa út, leika sér í "nammisporleit" og helsta áhugamál er matagerð. Hún er mjaðmamynduð C og Augu eru FRI. Þoka er búin að fara í skapgerðarmat hjá Brynju Tomer hundaþjálfara sem hafði þetta að segja: Þoka er mjög hlý og opin, vingjarnlega við ókunnuga. Áhugasöm um nýtt umhverfi og óvenju yfirveguð. Glaðlynd og björt. Þessi tík á heima í samskiptum við fólk og er frábær! Þoka starfar sem heimsóknarhundur á vegum rauða krossins og heimsækir Hrafnistu í Reykjavík, Hrafnistu í Hafnarfirði og annann við sinn í Hafnarfirði. Hún er mjög vinsæl. Þoka fór í hundaskólann Gallerý Voff og útskrifaðist með glæsibrag og kom heim með hangandi gullpening um hálsinn. Birta er gotsystir Þoku og henni gengur vel í Noregi. Hér má lesa um hana: BIRTA Faðir er Kirkjufells-Kappi
Móðir er Fagrahvamms-Snotra(Píla). Ættbók ![]()
|
Um mig Nafn: SollaFarsími: 6977853Tölvupóstfang: zunlolly@gmail.comAfmælisdagur: 7. desemberHeimilisfang: SnigilsstaðirStaðsetning: JörðFaðir: PabbiMóðir: MammaTenglar |